Gáski sjúkraþjálfun: 568 9009 • Þönglabakka 1, 109 Reykjavík • Bolholti 8, 105 Reykjavík • afgreidsla@gaski.is
Náðu þér á strik með
með góðum stuðningi
Hjá okkur ert þú númer eitt
Rétt greining skiptir
mestu máli fyrir þig
Eftirfylgni að meðferð lokinni
Örugg heilsurækt
undir handleiðslu
Pössum upp á réttar æfingar sem henta þér
Markviss meðhöndlun
styttir bataferlið
VIð erum félagi þinn í endurhæfingu

Sjúkraþjálfun

Yfir þrjátíu ára saga í Gáska - við erum félagi þinn á leið þinni að bættri heilsu.

Heilsurækt

Rúmgóð og þægileg líkamsræktaraðstaða. Við leiðum þig áfram á þinni vegferð í þjálfun.

Meðgöngusund

Meðgöngusund hefur fest sig í sessi á undanförnum árum. Sund er heilandi.

Yfir 30 ára reynsla

Frá árinu 1988 hefur markmiðið verið að styðja, efla og leiðbeina skjólstæðingum til betra lífs.

Gáski er miðsvæðis

Við erum á tveimur stöðum, Mjódd og Bolholti

Alls starfa um 30 sjúkraþjálfarar hjá Gáska, í Mjódd og Bolholti. Hér getur þú flett upp sjúkraþjálfurum á hvorum stað fyrir sig – og séð áhugasvið/sérþekkingu þeirra. Við mælum með að þú veljir þann stað sem er meira í þinni alfaraleið.

Þönglabakki 1

Við erum uppi á 2. hæð. Þú getur tekið lyftuna eða notað stigann. Um er að ræða sama inngang og Læknasetrið og Heilsugæslan.

Bolholt 8

Í Bolholti er stór og rúmgóð heilsurækt ásamt meðferðarrýmum. Gott aðgengi af jarðhæð með rampi fyrir hjólastóla.

Meðhöndlun til betra lífs

Er ekki nóg að teygja bara?

Meðferðaráætlun

Með sjúkraþjálfaranum setur þú upp áætlun - með skammtíma- og langtímamarkmiðum sem þú styðst við á leið þinni að betri heilsu.

Meðhöndlun

Fyrsta skrefið getur verið áskorun en hjá sjúkraþjálfurum Gáska ertu í góðum höndum.

Þú gerir þitt

Gott er að hafa í huga að ekkert gerist af sjálfu sér. Þú þarft alltaf að skila þínu til að árangur náist.

Mat og eftirfylgni

Gáski býður upp á eftirfylgni og mat í kjölfar meðferðar. Við sleppum ekki af þér höndinni án stuðnings.

Öflugt teymi

Af hverju að velja Gáska

Hjá Gáska starfa um 30 þaulreyndir sjúkraþjálfarar með reynslu á mjög breiðum grunni.

Við erum rannsakendur og kennarar

Mörg okkar hafa unnið við rannsóknir innan háskólasamfélagins, við kennum verðandi sjúkraþjálfurum og fáum birtar eftir okkur greinar m.a. í virtum alþjóðlegum ritrýndum tímaritum.

Við erum auðmjúk og fróðleiksfús

Meðal Gáskverja eru nokkrir af lærðustu sjúkraþjálfurum landsins. Við hvetjum og styðjum hvort annað, nýtum okkur sérsvið og áhugsvið hvors annars og störfum saman. Þú færð ekki bara þinn sjúkraþjálfara, þú „færð" okkur öll.

Við erum íþróttaunnendur

Meðal sjúkraþjálfara Gáska finnur þú sérfræðinga í íþróttasjúkraþjálfun, atvinnuþjálfara úr ýmsum íþróttagreinum, fyrrverandi afreks íþróttamenn/konur og fólk sem brennur ástríðu fyrir íþróttum. Við hlökkum til að vinna með þér í íþrótta endurhæfingu þinni.

Rúmgóð aðstaða til líkamsræktar

Bæði í Mjódd og Bolholti bjóðum við upp á rúmgóða og bjarta líkamsræktaraðstöðu sem opin er frá kl. 8-16 alla virka daga.

Árangursrík heilsurækt

Við erum alltaf í salnum til að aðstoða

Góð vísa er aldrei of oft kveðin. Við vitum að endurteknar æfingar skila árangri. Með sérhannaða og fjölbreytta æfingaáætlun frá þjálfurum Gáska, nærðu stöðugleika í framkvæmd æfinga sem skila sér í betri daglegri heilsu og líðan.

Spurningar & svör

Þetta eru algengar spurningar

Oft getur verið ágætt að sjá hvað aðrir vilja vita…

Gáski hefur yfir að ráða sérhæfðum sjúkraþjálfurum vegna íþróttameiðsla. Við byggjum upp stigvaxandi getu ökklans til að halda jafnvægi og framkvæma flóknar færniþrautir, allt í samræmi við kröfur íþróttagreinarinnar til ökklans.

Lestu meira hér.

Það er oft erfitt að kortleggja hvernig daglegt amstur og hreyfimynstur veldur álagi í stoðkerfinu og gott að hafa kunnugan félaga til að átta sig á því hvar maður getur farið betur með sig. Þetta er meðal þess sem þið sjúkraþjálfarinn vinnið að, sem oft er besta forvörnin gagnvart álagseinkennum í baki.

Lesa meira hér.

Slitgigt er algengasta tegund gigtar. Slit í stoðkerfinu er eðlilegur fylgikvilli hækkandi aldurs, en slitgigt telst snemmbúin brjóskeyðing og er óafturkræfur, krónískur sjúkdómur. Slitgigt getur greinst í öllum liðum, en er algengust í höndum, hnjám, mjöðmum og baki.

Lesa meira hér.

Í dag miðast svo margt við notkun skjáa, og það er áskorun fyrir okkur öll að ætla að forðast óæskileg áhrif mikillar skjánotkunar á stoðkerfið. Stoðkerfið er hannað til hreyfingar, ekki kyrrstöðu. Við höldum heilsu í stoðkerfinu með hæfilegri, reglulegri hreyfingu, bæði yfir daginn og til lengri tíma litið. Það reynist mörgum áskorun að samræma þessa staðreynd valkvæðri eða vinnutengdri skjánotkun.

Lesa meira hér.

Meðgöngusund hefur reynst mörgum konum vel á meðgöngu. Meðgöngusund býður upp á sérsniðna leikfimitíma fyrir konur á meðgöngu. Tímarnir eru undir handleiðslu sjúkraþjálfara og hafa notið mikilla vinsælda. Hér geturðu lesið þér til um það sem er í boði hjá Meðgöngusundi.

Í Gáska starfar Ragnar Hermannsson sem hefur síðastliðin 20 ár starfað nær eingöngu við að aðstoða fólk í að ráða bug á axlarmeinum sínum. Hann hefur auk þess haldið fjöldamörg námskeið innanhúss og séð til þess að halda sjúkraþjálfurum Gáska í fremstu víglínu þegar kemur að baráttunni gegn axlarmeinum.

Lesa meira hér.

is_IS

Viltu panta símtal?

Þarftu afbóka tíma?

Ef þú vilt að bóka nýjan tíma, hringdu í okkur í síma 568 9009

Skrá á biðlista?