Gáski physiotherapy: 568 9009 • Þönglabakka 1, 109 Reykjavík • Bolholti 8, 105 Reykjavík • afgreidsla@gaski.is
Svið meðferðar: Sjúkraþjálfun

Vöðvabólga – líkamsstöðutengt

Ástandið „vöðvabólga” felur í sér síspennuástand á vöðvunum…

„Vöðvabólga” er að vissu leyti rangnefni. Ástandið er ekki náttúrulegt og æskilegt gróandaferli eins og sú bólga sem við sjáum í kjölfar þess þegar við t.d. tognum. Ástandið „vöðvabólga” felur frekar í sér síspennuástand á vöðvunum sem veldur skertu blóðflæði til þeirra.

Vöðvabólga er stundum af völdum aukinnar kyrrstöðu, miður góðrar líkamsstöðu, eða jafnvel af völdum endurtekinna, einhæfra hreyfinga yfir langan tíma.  Hún fylgir frekar lífsstíl sem einkennist af mikilli kyrrstöðu, sér í lagi (en ekki einungis) í sitjandi stöðu. Einnig veldur ákveðin líkamsbygging aukinni áhættu á vöðvabólgu í hálsi og herðum, eins og aukin sveigja á brjóstbaki, eða framstætt höfuð.

Auk einkennameðferðar hjá sjúkraþjálfara sem getur minnkað einkenni þín tímabundið er mikilvægast að þú, í samstarfi við sjúkraþjálfara, komist af stað í æfingamiðaða meðferð, ekki síst til að minnka tilhneigingu þína til vöðvabólgu til langs tíma litið.  Þú lærir að auka blóðflæði um svæðið sjálf(ur). Langbesta leiðin til að tækla tilhneigingu til vöðvabólgu eru æfingar og leiðrétting á ávanabundinni líkamsstöðu.

Að hefja sjúkraþjálfun

Til að einfalda skrefin og auðvelda ástundun er gott að vita sitthvað um undirbúning, ferlið og eftirleikinn. Við hjálpum þér alla leið.

1. Beiðni frá lækni?

Ekki þarf beiðni frá lækni fyrir fyrstu sex meðferðartímunum. Ef um lengri meðferð er að ræða þarf beiðni frá lækni.

2. Skoðun sjúkraþjálfara

Undirbúningur er mikilvægur. Í upphafi spáum við vel í spilin með þér og finnum síðan bestu leiðina að bata.

Meðferð/endurhæfing

Meðferðin fer svo fram í samstarfi við sjúkraþjálfara Gáska. Þar ert þú númer eitt.

Útskrift

Öllu máli skiptir að endurhæfingin þín gangi vel. Við fylgjumst með þér allan tímann fram að útskrift. Og við fylgjum þér eftir.

Hafðu samband við okkur hjá Gáska og við finnum rétta farveginn með þér. Þú getur sent okkur tölvupóst eða hringt í okkur í síma 568 9009

Fáðu aðstoð!

Móttökuritarinn okkar, hún Björg getur gefið hagnýtar upplýsingar varðandi tímabókun.
568 9009
en_GB

Skrá á biðlista?

Þarftu afbóka tíma?

Ef þú vilt að bóka nýjan tíma, hringdu í okkur í síma 568 9009

Do you want to book a call?