Gáski mælir með sundi sem hluta af endurhæfingu eða lífsstíl fólks. Sund er mjúk hreyfing sem setur lítið álag á bein og liðamót, en gefur þér samt færi á að reyna á stóra vöðvahópa í einu.
Sund er því gott dæmi um æskilegt og hagkvæmt val á hreyfingu, praktískt, ódýrt og gott fyrir lundina.
Til að einfalda skrefin og auðvelda ástundun er gott að vita sitthvað um undirbúning, ferlið og eftirleikinn. Við hjálpum þér alla leið.
Ekki þarf beiðni frá lækni fyrir fyrstu sex meðferðartímunum. Ef um lengri meðferð er að ræða þarf beiðni frá lækni.
Undirbúningur er mikilvægur. Í upphafi spáum við vel í spilin með þér og finnum síðan bestu leiðina að bata.
Meðferðin fer svo fram í samstarfi við sjúkraþjálfara Gáska. Þar ert þú númer eitt.
Öllu máli skiptir að endurhæfingin þín gangi vel. Við fylgjumst með þér allan tímann fram að útskrift. Og við fylgjum þér eftir.
Hafðu samband við okkur hjá Gáska og við finnum rétta farveginn með þér. Þú getur sent okkur tölvupóst eða hringt í okkur í síma 568 9009
Hér getur þú leitað upplýsinga um stöðu COVID-19 og viðbrögð Gáska sjúkraþjálfunar á hverjum tíma.
Since 1988, the goal has been to support, empower and guide clients to a better life.
Ef þú vilt að bóka nýjan tíma, hringdu í okkur í síma 568 9009