Gáski sjúkraþjálfun: 568 9009 • Þönglabakka 1, 109 Reykjavík • Bolholti 8, 105 Reykjavík • afgreidsla@gaski.is
Svið meðferðar: Sjúkraþjálfun

Sjúkraþjálfun (h)eldri borgara

Með hækkandi meðalaldri reynist síðasta æviskeið fólks lengra og lengri…

Með hækkandi meðalaldri reynist síðasta æviskeið fólks lengra og lengri. Listin að eldast vel er eitthvað sem við ættum öll að huga að.

Vegna aldurstengdrar vöðvarýrnunar reynist styrkþjálfun veigamikill þáttur í því að eldast vel, auk annarra færni- og jafnvægisæfinga sem auka gæði daglegs lífs með hækkandi aldri, og minnka slysatíðni.

Í Gáska er heimilislegur tækjasalur í persónulegu umhverfi. Þetta reynist mörgum vel, líka þeim sem hafa jafnvel litla sem enga reynslu af æfingaiðkun.

Að hefja sjúkraþjálfun

Til að einfalda skrefin og auðvelda ástundun er gott að vita sitthvað um undirbúning, ferlið og eftirleikinn. Við hjálpum þér alla leið.

1. Beiðni frá lækni?

Ekki þarf beiðni frá lækni fyrir fyrstu sex meðferðartímunum. Ef um lengri meðferð er að ræða þarf beiðni frá lækni.

2. Skoðun sjúkraþjálfara

Undirbúningur er mikilvægur. Í upphafi spáum við vel í spilin með þér og finnum síðan bestu leiðina að bata.

Meðferð/endurhæfing

Meðferðin fer svo fram í samstarfi við sjúkraþjálfara Gáska. Þar ert þú númer eitt.

Útskrift

Öllu máli skiptir að endurhæfingin þín gangi vel. Við fylgjumst með þér allan tímann fram að útskrift. Og við fylgjum þér eftir.

Hafðu samband við okkur hjá Gáska og við finnum rétta farveginn með þér. Þú getur sent okkur tölvupóst eða hringt í okkur í síma 568 9009

Fáðu aðstoð!

Móttökuritarinn okkar, hún Björg getur gefið hagnýtar upplýsingar varðandi tímabókun.
568 9009
is_IS

Skrá á biðlista?

Þarftu afbóka tíma?

Ef þú vilt að bóka nýjan tíma, hringdu í okkur í síma 568 9009

Viltu panta símtal?