Gáski sjúkraþjálfun: 568 9009 • Þönglabakka 1, 109 Reykjavík • Bolholti 8, 105 Reykjavík • afgreidsla@gaski.is
Svið meðferðar: Heilsurækt

Liðleikaþjálfun

Liðleiki hefur á undanförnum árum orðið meira áberandi í námskeiðahaldi innan líkamsræktargeirans….

Liðleiki hefur á undanförnum árum orðið meira áberandi í námskeiðahaldi innan líkamsræktargeirans. Það telst ekki lengur hausverkur fimleikafólks eða dansara að vera liðugur.

Skortur á liðferlum í einum lið veldur auknu álagi á þann næsta og getur því valdið ótímabæru sliti. Stirðleiki getur auk þess dregið úr gæðum hreyfinga og valdið uppbótarhreyfingum og skekkjum.

Góð æfingaáætlun tekur því mið af líkamlegu ástandi þínu, þegar þú færð sjúkraþjálfara til að setja upp fyrir þig æfingaáætlun leiðbeinir hann þér með réttar teygjur og liðkandi æfinga til að létta á stoðkerfi þínu og bæta daglega líkamlega líðan.

Að hefja sjúkraþjálfun

Til að einfalda skrefin og auðvelda ástundun er gott að vita sitthvað um undirbúning, ferlið og eftirleikinn. Við hjálpum þér alla leið.

1. Beiðni frá lækni?

Ekki þarf beiðni frá lækni fyrir fyrstu sex meðferðartímunum. Ef um lengri meðferð er að ræða þarf beiðni frá lækni.

2. Skoðun sjúkraþjálfara

Undirbúningur er mikilvægur. Í upphafi spáum við vel í spilin með þér og finnum síðan bestu leiðina að bata.

Meðferð/endurhæfing

Meðferðin fer svo fram í samstarfi við sjúkraþjálfara Gáska. Þar ert þú númer eitt.

Útskrift

Öllu máli skiptir að endurhæfingin þín gangi vel. Við fylgjumst með þér allan tímann fram að útskrift. Og við fylgjum þér eftir.

Hafðu samband við okkur hjá Gáska og við finnum rétta farveginn með þér. Þú getur sent okkur tölvupóst eða hringt í okkur í síma 568 9009

Fáðu aðstoð!

Móttökuritarinn okkar, hún Björg getur gefið hagnýtar upplýsingar varðandi tímabókun.
568 9009
is_IS

Skrá á biðlista?

Þarftu afbóka tíma?

Ef þú vilt að bóka nýjan tíma, hringdu í okkur í síma 568 9009

Viltu panta símtal?