Í dag miðast svo margt við notkun skjáa, og það er áskorun fyrir okkur öll að ætla að forðast óæskileg áhrif mikillar skjánotkunar á stoðkerfið. Stoðkerfið er hannað til hreyfingar, ekki kyrrstöðu. Við höldum heilsu í stoðkerfinu með hæfilegri, reglulegri hreyfingu, bæði yfir daginn og til lengri tíma litið. Það reynist mörgum áskorun að samræma þessa staðreynd valkvæðri eða vinnutengdri skjánotkun.
Hjá okkur færðu einkennamerð og heildræna nálgun á það hvernig má halda heilsu þrátt fyrir þessa áskorun. Í þessu felst fræðsla, sérhönnuð persónuleg æfingaáætlun, teygjur og góðar daglegar venjur sem spyrna við óæskilegum áhrifum skjánotkunar.
Flestir ná sér á nokkrum vikum með verkjaminnkandi aðferðum, meðferðarúrræðum sjúkraþjálfara og æfingum. Sumum nægir tímabundin notkun “ekki lyfseðilsskyldra” verkjalyfja og heimaremedíur - aðrir flýta fyrir bata sínum og auka hann með meðferð hjá sjúkraþjálfara. Minnihluti skjólstæðinga með þessa áverka hlýtur varanlega verkjatilhneigingu og breytta starfræna færni í hálsi eftir þessa skaða.
Við mælum með að þú leitir læknis og í kjölfarið sjúkraþjálfara ef þú hefur einkenni svipuhöggsskaða eftir utanaðkomandi átak eins og aftanákeyrslu eða aðra tegund samstuðs:
Hvað getur þú gert til að skapa rými til gróanda? Hvað ber að forðast? Hvernig sérð þú til þess að þú náir sem fyrst bata? Þetta er meðal þess sem þið sjúkraþjálfarinn ræðið - þið vinnið saman að meðferð til aukins gróanda / verkjaminnkunar. Þetta felur m.a. í sér kennslu æfinga í forvarnarskyni og til að ýta undir bata. Hún fer jafnt fram í tækjasal Gáska og i framhaldinu þar sem þú vilt / ert vanur/vön að gera æfingar.
Slit í hálshrygg (cervical spondylosis) lýsir sér, eins og slit annars staðar í hryggnum, með lækkuðu liðbili og aukinni brjóskeyðingu á liðflötum. Þetta getur valdið nabbamyndun og breyttum liðflötum / óstöðugleika hryggjarliða sem geta þá þrengt að taugarótunum á leið sinni út úr mænugöngunum. Þrenging að mænurót getur valdið leiðandi verkjum/ breyttu skyni / dofa út í handlegg(i).
Í samstarfi við sjúkraþjálfara lærir þú leiðir til að minnka álag á hálshrygg. Hér er lykilatriði að kunna hvað ágerir einkennum þínum og hvernig þú getur spyrnt við frekara sliti. Aðferðir til að minnka áhrif óæskilegrar skjánotkunar, leiðréttingu á líkamsstöðu og æfingar til aukins kyrrstöðustyrks (sjá hlekk á umfjöllun um stöðugleikaæfingar hér), hafa nýst fólki í þinni stöðu vel sem hafa náð betri líðan þrátt fyrir slit í hálsi. Þetta gerum við með þér.
Hryggþófi kallast mjúkur diskur sem liggur milli hryggjarliða og virkar sem höggdemprari í hryggnum. Yst afmkarðar hryggþófann himna, við tekur svo lagskiptur trefjaríkur liðþófinn inn á við að miðlægum kjarna sem er úr mýkra efni en lögin hið ytra. Þegar rifa eða skemmd verður á hryggþófanum greinist stundum ástand sem lýsir sér með útbungun á mjúku efni hryggþófans (protrusion) eða rofi á ystu himnu hryggþófans. Rofið leyfir þá mjúka efninu að gúlpast út í taugarótarbilið milli hryggjarliðanna (prolaps). Hið síðarnefnda kallast í daglegu tali brjósklos sem veldur oftar en ekki ertingu á taugarót.
Sjálft orðið gefur okkur flestum óþægindatilfinningu, enda oft á tíðum um sársaukafullla og langa leið að bata að ræða, hvort sem framkvæmd er aðgerð eður ei.
Sjúkraþjálfarinn er þér félagi í þessari vegferð. Þar kemur hvatning, væntingastýring, markmiðasetning, áfangasigrar, og fræðsla sterk inn. Meðferðarúrræði í sjúkraþjálfun gefa þér leiðir til einkennaléttis sem aftur gefur aukinn meðbyr til að tækla þetta verkefni.
Til að einfalda skrefin og auðvelda ástundun er gott að vita sitthvað um undirbúning, ferlið og eftirleikinn. Við hjálpum þér alla leið.
Ekki þarf beiðni frá lækni fyrir fyrstu sex meðferðartímunum. Ef um lengri meðferð er að ræða þarf beiðni frá lækni.
Undirbúningur er mikilvægur. Í upphafi spáum við vel í spilin með þér og finnum síðan bestu leiðina að bata.
Meðferðin fer svo fram í samstarfi við sjúkraþjálfara Gáska. Þar ert þú númer eitt.
Öllu máli skiptir að endurhæfingin þín gangi vel. Við fylgjumst með þér allan tímann fram að útskrift. Og við fylgjum þér eftir.
Hafðu samband við okkur hjá Gáska og við finnum rétta farveginn með þér. Þú getur sent okkur tölvupóst eða hringt í okkur í síma 568 9009
Hér getur þú leitað upplýsinga um stöðu COVID-19 og viðbrögð Gáska sjúkraþjálfunar á hverjum tíma.
Frá árinu 1988 hefur markmiðið verið að styðja, efla og leiðbeina skjólstæðingum til betra lífs.
Ef þú vilt að bóka nýjan tíma, hringdu í okkur í síma 568 9009