Gáski sjúkraþjálfun: 568 9009 • Þönglabakka 1, 109 Reykjavík • Bolholti 8, 105 Reykjavík • afgreidsla@gaski.is
Svið meðferðar: Meðgöngusund

Meðgöngusund

Meðgöngusund er sundleikfimi fyrir barnshafandi konur……

Frábær æfinga- og sjálfræktarkostur

Gáski bendir barnshafandi konum á Meðgöngusund, sem er frábær æfinga- og sjálfræktarkostur fyrir konur sem ganga með barn.

Meðgöngusund er sundleikfimi fyrir barnshafandi konur. Áhersla er lögð á stöðugleikaþjálfun fyrir mjóbak og mjaðmagrind auk fræðslu. Einnig eru gerðar liðkandi og styrkjandi æfingar fyrir allan líkamann.

Meðgöngusund er með tíma tvisvar í viku, ýmist á morgnana eða á kvöldin undir stjórn sjúkraþjálfara sem eru útskrifaðir úr læknadeild Háskóla Íslands. Allir kennarnir okkar eru með réttindi í skyndihjálp, björgun í vatni og sundlaugarvörslu.

Meðgöngusund hefur verið starfrækt frá árinu 2001 og er fyrsta sundleikfimin fyrir barnshafandi konur á Íslandi. Góð reynsla er því komin á Meðgöngusund og hefur það reynst sérstaklega vel til að minnka verki frá stoðkerfinu, auk þess sem það er bjúgminnkandi. Flestar konur koma vegna meðmæla frá ljósmóður, lækni eða sjúkraþjálfara.

Nánari upplýsingar má finna á www.medgongusund.is

Að hefja sjúkraþjálfun

Til að einfalda skrefin og auðvelda ástundun er gott að vita sitthvað um undirbúning, ferlið og eftirleikinn. Við hjálpum þér alla leið.

1. Beiðni frá lækni?

Ekki þarf beiðni frá lækni fyrir fyrstu sex meðferðartímunum. Ef um lengri meðferð er að ræða þarf beiðni frá lækni.

2. Skoðun sjúkraþjálfara

Undirbúningur er mikilvægur. Í upphafi spáum við vel í spilin með þér og finnum síðan bestu leiðina að bata.

Meðferð/endurhæfing

Meðferðin fer svo fram í samstarfi við sjúkraþjálfara Gáska. Þar ert þú númer eitt.

Útskrift

Öllu máli skiptir að endurhæfingin þín gangi vel. Við fylgjumst með þér allan tímann fram að útskrift. Og við fylgjum þér eftir.

Hafðu samband við okkur hjá Gáska og við finnum rétta farveginn með þér. Þú getur sent okkur tölvupóst eða hringt í okkur í síma 568 9009

Fáðu aðstoð!

Móttökuritarinn okkar, hún Björg getur gefið hagnýtar upplýsingar varðandi tímabókun.
568 9009
is_IS

Skrá á biðlista?

Þarftu afbóka tíma?

Ef þú vilt að bóka nýjan tíma, hringdu í okkur í síma 568 9009

Viltu panta símtal?