Sjúkraþjálfun

Tilgangur meðferðar er að tryggja að líkaminn starfi á sem eðlilegastan hátt.
Þessu er náð fram með fræðslu um líkamsstöðu og vinnustellingar,
æfingameðferð og liðlosun ásamt hnykkingum, nálarstungum, nuddmeðhöndlun
vöðvateygjum og rafmagnsmeðferð.

Ferli

1. Sjúkraþjálfarar meðhöndla samkvæmt tilvísun læknis, eins og gert er ráð
fyrir í lögum um sjúkraþjálfun.

2. Ef þú þarft meðferð, sem sjúkraþjálfari gæti veitt, þarftu að fá tilvísun hjá lækni.

3. Fjöldi meðferða fer eftir gangi mála og er ákvörðun sjúkraþjálfara og sjúklings
ásamt þeim takmörkum sem Tryggingarstofnun Ríkisins setur. Meðferð er hætt
þegar fullnægjandi árangri er náð eða frekari árangur næst ekki.

4. Að lokinni meðferð sendir sjúkraþjálfari tilvísandi lækni skýrslu þar sem sagt er frá niðurstöðu skoðunar, hvaða meðferð var veitt og hvernig gekk.